Tengiliður barna
Tengiliður
Strax við fæðingu barns, eða eftir atvikum á meðgöngu, eiga foreldrar og börn rétt á þjónustu tengiliðar eftir því sem þörf krefur. Hlutverk tengiliðar er fyrst og fremst að veita upplýsingar, aðstoða foreldra og barn og styðja við samþættingu þjónustu á fyrsta stigi í samræmi við óskir foreldra og eða barns. Tengiliður er einstaklingur í nærumhverfi barnsins:
- Frá fæðingu og þar til barn hefur nám í leik- eða grunnskóla er tengiliður starfsmaður heilbrigðisstofnunar.
- Þegar barn er við nám í leik-, grunn- eða framhaldsskóla er tengiliður starfsmaður skólans þar sem barn er við nám.
- Ef það á ekki við er tengiliður starfsmaður félagsþjónustu þess sveitarfélags þar sem barn á lögheimili.
Tengiliður í leikskólanum Bjarkatúni er Hugrún Malmquist Jónsdóttir, sérkennslustjóri.
https://www.mulathing.is/is/thjonusta/felagsthjonusta/farsaeld-barna